Berlín maraþonið 2024
ARNAR PÉTURS
Arnar Péturs er þrautreyndur landsliðshlaupari og hlaupaþjálfari. Hann hefur 64 sinnum orðið Íslandsmeistari og sigrað Laugaveginn tvisvar. Auk þess hefur hann fjórum sinnum keppt á HM í hálfu maraþoni og einu sinni á HM í utanvegahlaupum.
Arnar skrifaði Hlaupabókina sem inniheldur þekkingu sem hann hefur aflað sér með því að æfa með bestu hlaupurum og þjálfurum í heiminum. Þessa þekkingu notar hann í allri sinni þjálfun.
Sem hlaupaþjálfari hefur Arnar unnið með öllum getustigum hlaupara, allt frá þeim sem vilja taka fyrstu skrefin til þeirra sem vilja bæta tímana sína. Hvort sem það eru 5 km eða Laugavegurinn.
„Allt er hægt ef þú kannt að fara nógu hægt.“
HEIMSÓKN &
HREYFIÁSKORUN
„Ég hef ótrúlega gaman af því að veita fólki nýja sýn á hlaupin og hreyfingu yfir höfuð. Þá er líka gefandi að taka þetta skrefinu lengra og tala um markmiðasetningu, andlega þáttinn og aðra þætti sem gera leiðina að árangri skemmtilegri."
Hægt er að sérsníða fyrirlestra eftir þörfum.
Vinsælustu fyrirlestrarnir:
-
Hvernig tökum við fyrstu skrefin?
-
Hvernig æfum við rétt?
-
Allt er hægt ef við kunnum að fara nógu hægt.
-
Hvernig gerum við markmiðasetningu skemmtilega?
-
Hvað er að hlaupa rétt?
Hreyfiáskorun er skemmtileg leið fyrir fyrirtæki til að efla starfsandann en einnig er hægt að skipuleggja æfingar saman sem ýtir enn frekar undir góða þátttöku.
„Arnar hélt virkilega áhugaverðan fyrirlestur um hlaupastíl og skynsamlega líkamsbeitingu í langhlaupum fyrir okkur í Genki. Metnaður og ástríða Arnars er smitandi og í kjölfarið hlupu mörg okkar sín fyrstu hálf- og heilmaraþon.“
— Ólafur Bogason, stofnandi Genki Instruments
„The go-to-guy þegar kemur að hlaupaþjálfun. Arnar hefur kafað dýpra og prófað meira en flestir þegar kemur að hlaupum. Frábær fyrirlestur sem allir hafa gott af því að heyra.“
— Aron Már Björnsson, Afrekssvið MK og Styrktarþjálfari Knattspyrnudeildar Breiðabliks